18september

159 Metrar !!!!

Jæja gaman að segja frá að þá er þessu lokið, þann
13 sept stakk ég mér til sunds af bryggju og tók stefnu
á gemlufall, skemst frá því að segja að í bullandi mót/hliðar straum
komst ég heila 159 metra á heilum 4 mínútum. Þar með má segja
að ég hafi staðið við mín orð um að gera ilraun til sundsins, og ég
lærði líka helling á líkamann minn þarna, þar sem ég sá hvað mig
skortir til að klára þetta. Og það er aðeins minna af útflöttum rassi
á tölvustól, og meyra svona hristandi hlauprassi af hreifingu. Þar
með er ég búinn að áhveða að taka mig á, er búinn að biðla til
bæjaryfirvalda að lækka verðið á tækjasalnum, vona svo bara að
ég geti dr****** til þess að taka mig á.

P.S nýjir speakers in das Skoda (800W Each)

Heyrumst kanski Illa næst :S

Gunni Joð
18. september 2008 klukkan 23:23
Hrúturinn
1 athugasemd
01september

Tímasetning komin á sundið

Svo fremi sem veður verður gott þá ætla ég að reyna
að þreita mitt mikla sund yfir fjörðinn minn fagra, og
ætla að henda mér í þetta helgina 12-14 sept. Þar af leiðandi
þá þreiti ég frumraun mína í þessum efnum og ætla mér að
leggja af stað þó veður sé ekkert endilega alltof gott, þar sem
ég er að falla á tíma með að ná þessu þetta sumarið (þó sé
komið fram í sept). Þá ætla ég að standa við mín orð og synda
að minsta kosti af stað frá bryggju og lengra en bara að stinga
mér eða spyrna frá bakka :P

Wish me luck and all that b´****

Kv Gunni Joð
01. september 2008 klukkan 22:08
Hrúturinn
1 athugasemd
03ágúst

Dýrafjarðar sund yfirvofandi

Jæja góðir hálsar nú fer að koma að því á næstu dögum
að ég láti reyna á þol mitt og almættið, svona fyrir þá sem
á það trúa. Annars verð ég bara að ttreysta á þolið sjálfur og maske
skrákana í Dýra, sem ég vona að ég fái til að vera til taks á tuðrunni.
En eins og ég hef sagt sumum þá er markmiðið eiginlega að leggja
af stað, ekkert endilega að komast yfir þó sumir kannski haldi það.
en þar sem ég er ekkert í 100% formi ( nema þá maske kökuformi)
þá er markmiðið að synda í allavegana hálftíma áður en ég fer í
bátinn eða á botninn. Ætla að reyna að auglýsa þetta með einhverjum
fyrirvara svo þið getið komið eg hlegið dátt. Finnst eins og eina
ástæðan fyrir veru minni í þessum heimi sé til þess að hlægja að mér
eða með mér. En það var barið inn í hausinn á mér að hafa bara
gaman að því þegar ég var í skóla svo endilega kíkið inn á næstu viku
til að fá nánari dagsetningu, en nú ætla ég að koma mér að eta.

Takk fyrir takk og verði ykkur að góðu

Sir Gunni Joð


03. ágúst 2008 klukkan 21:13
Hrúturinn
2 athugasemdir

Aðalvalmynd

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Auglýsing

Myndbönd

Gagnasafn

Fótbolti

Leit

Könnun

800W of mikið eða fá mér keilu til að styðja þá ?

Innskráningar kubbur