Dýrafjarðar sund yfirvofandi

Jæja góðir hálsar nú fer að koma að því á næstu dögum
að ég láti reyna á þol mitt og almættið, svona fyrir þá sem
á það trúa. Annars verð ég bara að ttreysta á þolið sjálfur og maske
skrákana í Dýra, sem ég vona að ég fái til að vera til taks á tuðrunni.
En eins og ég hef sagt sumum þá er markmiðið eiginlega að leggja
af stað, ekkert endilega að komast yfir þó sumir kannski haldi það.
en þar sem ég er ekkert í 100% formi ( nema þá maske kökuformi)
þá er markmiðið að synda í allavegana hálftíma áður en ég fer í
bátinn eða á botninn. Ætla að reyna að auglýsa þetta með einhverjum
fyrirvara svo þið getið komið eg hlegið dátt. Finnst eins og eina
ástæðan fyrir veru minni í þessum heimi sé til þess að hlægja að mér
eða með mér. En það var barið inn í hausinn á mér að hafa bara
gaman að því þegar ég var í skóla svo endilega kíkið inn á næstu viku
til að fá nánari dagsetningu, en nú ætla ég að koma mér að eta.

Takk fyrir takk og verði ykkur að góðu

Sir Gunni Joð


03. ágúst 2008 klukkan 21:13
Hrúturinn
Katrín Lind skrifar ...
Þú ert svakalegur dreingur að ætla að vaða svona í einhverja vitleisu og þar með ekki í formi en það er náturulega ekki vist að það verði heitur sjórin þegar þú ætlar að láta vaða

en allavg gangi þer vel ;;
kv Lind
05. ágúst 2008 klukkan 00:05
Daðey skrifar ...
Ég kem...svo lengi sem það verður ekki á vinnutíma... :)
Finnst frábært hjá þér að gera þetta, og ekki síst hvernig þú setur þetta upp, ætlar þér að leggja af stað og sjá hvað þú ferð langt :) Efast ekki um að gúmmíbátakarlarnir vilji koma og líta eftir þér...Valdi væri ábyggilega til í það :)

p.s. takk fyrir hjálpina í gær :)
07. ágúst 2008 klukkan 19:39

Skrifa athugasemd

Aðalvalmynd

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Auglýsing

Myndbönd

Gagnasafn

Fótbolti

Leit

Könnun

800W of mikið eða fá mér keilu til að styðja þá ?

Innskráningar kubbur